
Við erum 2 og hálfs árs YNDISLEGIR eineggja tvíburabræður
Við fæddumst eftir 34 vikna + 5 daga meðgöngu, þann 23. október 2007 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Tvíburi A, Patrekur kom í heiminn klukkan 18:15, 1815gr eða 7 merkur og 45 cm.
Tvíburi B, Viktor kom svo klukkan 18:36, 2580gr eða 10 merkur og 48 cm.
Foreldrar okkar eru Thelma Björg (´83) og Þorsteinn (´80).

Elsku Patrekur & Viktor
Áður en þið urðuð til þráðum við ykkur
Áður en þið komuð í heiminn elskuðum við ykkur
Áður en þið höfðuð lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir ykkur
Þið eruð kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til
Ykkar mamma og pabbi


